Ársskýrsla Félags tæknifólks 2024

Loading...

Ragnar Gunnarsson formaður ftfKæru félagar,

Ég vil byrja á að segja hjartans þakkir fyrir traustið sem þið hafið sýnt mér með því að velja mig sem formann Skerpu “Félags tæknifólks”. Það er virkilega stórt skref fyrir mig – og mér þykir það bæði heiður og áskorun sem ég tek af fullri alvöru.

Það er mér líka sérstök ánægja að fá að taka við keflinu af Jakobi Tryggvasyni. Hann hefur staðið vaktina af mikilli elju í gegnum árin og unnið ómetanlegt starf fyrir félagið okkar. Ég lærði mikið af honum á þeim tíma sem ég var varaformaður, og vil þakka honum innilega fyrir samstarfið og stuðninginn. Og ég mun halda áfram að bögga hann með ýmsa hluti.

Við höfum unnið að mörgu mikilvægu upp á síðkastið – og nú höldum við áfram. Þótt nýtt fólk taki sæti og áherslur geti breyst, ætla ég að leggja mig fram við að halda í það sem hefur gengið vel og byggja ofan á það – með það að markmiði að styrkja stöðu okkar allra í samfélaginu.

Ég hlakka til að vinna með ykkur – með opnum huga, og samstöðu að leiðarljósi. Ég tek þessu verkefni með mikilli auðmýkt og hlakka til að sjá hvað við getum gert saman.

Takk fyrir.

Kæru félagar

Nú þegar ég stíg frá sem formaður Félags tæknifólks er óhjákvæmilegt annað en að horfa aðeins yfir sviðið, hvað hefur áunnist og hvert félagið er að stefna. Á starfsárinu sem er nú að ljúka voru ýmis tímamót. Sameining Félags tæknifólks og Félags íslenskra símamanna varð 11. Nóvember 2024 og með því lauk ferli sem í raun hófst árið 2018 þegar Félag tæknifólks í rafiðnaði, Félag sýningarstjóra í kvikmyndahúsum og kjaradeild Félags kvikmyndagerðarmanna hófu viðræður um sameiningu, sameingin sem svo raungerðist í nóvember 2020. Meðfram þeim viðræðum og í framhaldi af þeim fór einnig fram óformleg rýni og viðræður milli sameinaðs félag og FÍS og því var hringnum lokað í nóvember á seinasta ári ef svo má segja.
Allan þennan tíma var einnig annað stórt verkefni á borði stjórnar félagsins, einn grunnkjarasamningur fyrir tæknigreinar, enda mikil þörf á slíkum samningi þar sem einu eiginlegu kjarasamningarnir innan tæknigreina voru sérsamningar við stærri vinnustaði og viðauki við aðra kjarasamninga um tækistörf. Þar sem lög landsins gera ráð fyrir grunnsamningum til að skilgreina grunnréttindi og lágmarkslaun í atvinnugreinum þá var þörfin augljós. Grunnur að slíkum heildarsamningi var svo loks lagður í kjaraviðræðum á vormánuðum 2024 og í framhaldi hófst vinna við innleiðingu samningsins og nauðsynlegra fyrirtækjaþátta og það var svo ekki fyrr en á Þorláksmessu í desember 2024 sem lokaafurð þessarar vinnu var samþykkt í atkvæðagreiðslum viðkomandi hópa.

Tvö stór verkefni hjá stækkandi stéttarfélagi í höfn á sama starfsári. Nánast í beinu framhaldi af þessu varð svo ljóst að það stefndi í að fulltrúar félagsins ásamt félögum okkar í hinum aðildarfélögunum innan RSÍ væru á leið inn á aukaþing sambandsins að kjósa nýjan formann. Þetta kemur til í kjölfar þess að Kristján Þórður tók sæti á Alþingi. Kristján hefur stýrt og styrkt starf RSÍ seinustu fjórtán árin og því ljóst að ekki væri auðvelt að stíga inn í það starf en eftir mikla yfirlegu hjá undirrituðum varð niðurstaðan að gefa kost á sér í formannskjöri RSÍ. Nokkuð stór hluti af þeirri ákvörðun voru einmitt þessi tímamót sem verða þegar þessi stóru verkefni félagsins eru í höfn. Nýtt sameinað félag hefur gott af endurnýjun. Ég er spenntur fyrir áframhaldandi starfi og ekki síður að geta verið stuðningur við starf félagsins sem formaður RSÍ. Framtíðin er full af tækifærum.

Takk fyrir mig.

Jakob Tryggvason var kjörinn formaður RSÍ á aukaþingi RSÍ og því varð að kjósa nýjan formann FTF. Þrjú voru í framboði: Sigríður Rósa Bjarnadóttir, Þorgils Björgvinsson og Ragnar G. Gunnarsson. Kosningin fór þannig að Ragnar var kjörinn með 41,5% atkvæða.

Lokið var við sameiningu FÍS og FTF á árinu. Gengið var frá öllu varðandi fjármál sameinaðs félags og eru þau sameiginleg frá janúar 2024.

Lög félaganna voru nánast eins með örfáum undantekningum, sem var gengið frá á breytingum á síðasta aðalfundi 2024.

Sameiningin var samþykkt í allsherjaratkvæðagreiðslum beggja félaganna.

Lagt var af stað með að finna nafn á sameinað félag og var Ingi Rafn og auglýsingastofan Tvist fengin í þá vinnu, sem verður kynnt hér síðar.

Unnið var mikil vinna í kringum nýjan Tæknigreinasamning. Gengið var frá honum og hann undirritaður. Einnig var gengið frá fyrirtækjaþáttum fyrir RÚV, SÝN, Isavia, Mílu og Símann og samningur við Já felldur inn í Tæknigreinasamninginn. Hafin er vinna við samning við SÍK (Samtök íslenskra kvikmyndagerðamanna). Við bindum vonir við að hann klárist fyrir haustið.

Núna síðustu daga hefur farið fram mikið starf við að bjarga málum fyrir nemendur Kvikmyndaskóla Íslands og virðist það vera komið fyrir horn, en alls óvíst er hvað verður með framhaldið, það ræðst að mestu af þeim vilja og framlögum sem ráðuneyti mennta- og háskólamála eru tilbúin að setja í áframhaldandi kennslu. Fram að úrskrift verður skólinn staðsettur í Sýrlandi að mestu leiti.

Okkur heldur áfram að fjölga. Nýlega sameinuðust Félag tæknifólks og Félag íslenzkra símamanna og er félagafjöldi þá kominn í tæp 2500 félaga.

673 atvinnurekendur greiða af starfsfólki sínu til Félags tæknifólks.

Í aðdraganda viðræðna milli FTF og Félags íslenskra símamanna – FÍS um sameiningu félaganna var ákveðið að blása til nafnasamkeppni um nýtt nafn á sameinað félag. Öllum félögum félaganna bauðst að senda inn tillögur að nafni.

Stýrihópur ræddi tillögur og niðurstaðan var sú að nýtt nafn á félagið yrði…..

Bransadagurinn var haldinn í annað sinn í ársbyrjun árið 2025. Bransadagurinn er haldinn af Félagi tæknifólks, Rafmennt og Hörpu og er dagur fagfólks í hljóð-, ljósa- og myndlausnum, sviðstækni, kvikmynda- og sjónvarpsgerð á Íslandi. Metþátttaka var í deginum sem er birtingarmynd þess hversu mikill kraftur býr í þeim atvinnugreinum sem tengjast þessum skapandi greinum á öllum sviðum.

Mikið var um dýrðir þegar rúmlega 300 manns mættu í Hörpu til að hittast og hlýða á einhver af þeim 21 erindum sem flutt voru yfir daginn. Fyrirlesarar voru innlendir og erlendir og voru fyrirlestrar vel sóttir. All nokkur fyrirtæki í bransanum kynntu sig, hluta af tækjakosti og starfsemi sína í ár en aðalbakhjarlar vour Extón, Luxor, Atendi og Sýrland. Eitt af aðalmarkmiðum Bransadags er að fræða bransafólk en einnig til að kynna þau fjölbreyttu störf sem falla undir bransann og um hvað þau snúast. Störfin í bransanum eru unnin af stórum hluta af körlum en um 86% skráðra þátttakenda á Bransadeginum 2025 voru karlar. Sérstök áhersla var lögð á það við skipulagningu dagskrár í ár að jafna hlutfall kynjanna meðal fyrirlesara og tókst það með ágætum.

Stór nöfn á alþjóðavísu héldu fyrirlestra og má þar nefna Sam Hunter, sem sviðsstýrði opnunar- og lokahátíð Ólympíuleikanna, Ola Melzig, framleiðslustjóra Eurovision 2024 og Sooner Routhier, einn allra fremsti sviðs- og ljósahönnuður heims en hún er ljósahönnuður fyrir Muse, Coldplay og fleiri stórstjörnur. Melzig stýrði Eurovision um árabil og opnað Eurovision fyrir tæknifólki með afar vinsælum bloggfærslum.

Á Bransadeginum 2025 voru öryggismálin sett sérstaklega á dagskrá af brýnni þörf með því að efna til pallborðsumræðna í lok dags. Þátttakendur í pallborði voru: Þingmaðurinn Víðir Reynisson, sviðs- og viðburðarstjórinn Máni Huginsson, Þór Pálsson frá Rafmennt, Ólafur Ástgeirsson frá Iðunni, Axel Pétursson frá Vinnueftirlitinu og Böðvar Tómasson frá ÖRUGG verkfræðistofa. Liðlega 100 manns sátu fundinn þar sem fram fóru góðar umræður um þetta mikilvæga málefni í störfum þessa bransa. Á fundinum var meðal annars rætt um mikilvægi þess að leggja drög að handbók um öryggismál í sviðslistum. Fundurinn samþykkti að hefja undirbúning þessarar vinnu.

Bransadagurinn hefur ekki síður það hlutverk að styrkja tengslin í bransanum og lauk dagskránni með uppistandi, snúrukeppni og veitingum þar sem svigrúm gafst til að bera saman bækur og mynda ný tengsl.

Erlent og innlent samstarf með UNI

Á vettvangi RSÍ hafa Grafía, Félag tæknifólks og Félag íslenskra símamanna tekið þátt í erlendu samstarfi á vettvangi UNI Global Union, sambandi stéttarfélaga í þjónustugreinum á alheimsvísu undanfarin ár. Innan UNI er svæðaskipting og hafa fulltrúar frá þessum félögum sótt annarsvegar UNI Global alheimsráðstefnuna og UNI Europe, evrópuráðstefnuna sem haldnar eru á víxl. Innan UNI eru svo deildir eins og MEI – Media, Entertainment & Arts, ICTS – ICT & related services og Graphical & Packaging sem aðildarfélög RSÍ hafa átt samskipti við.

Innan MEI samstarfsins tekur Félag tæknifólks þátt með nefndarstarfi og þátttöku í fundum og ráðstefnum.

  • Tveir fulltrúar Félags tæknifólks, Elma Guðmundsdóttir og Anna Melsteð, fóru á ráðstefnu í Brussel í nóvember 2024 og sátu áhugavert málþing um fjölbreytileika og inngildingu í tæknistörfum. Dagskráin var þétt skipuð áhugaverðum erindum og opnaði Emma Balfé frá Írlandi dagskrána, en í kjölfar þessarar ráðstefnu var hán fengið til að koma á Bransadaginn með erindi. Emma kennir við Institure of Art, Design and Technology á Írlandi og fjallaði um jafnrétti, inngildingu og fjölbreytileika í menntun. Emma sagði sérstaklega frá aðferðum sem innleiddar hafa verið til þess að fræða um þessa málaflokka. Rannsóknir benda til þess að fjármunir tapist í þjóðfélagi þegar fjölbreytileika, sjálfbærni og jafnrétti er ábótavant. Grípa þarf til fræðslu fyrir kynslóðirnar sem fæddar eru eftir árið 2000 til að undirbyggja það að enginn atvinnurekandi eða umhverfi í samfélögum vill ofbeldismenningu eða mismunun af neinu tagi.  Áhugaverðar pallborðsumræður voru settar upp og voru fulltrúar Félags tæknifólks sammála um að efni ráðstefnunnar ætti erindi í íslenskan veruleika ekki síst í tengslum við stóra jafnréttisárið 2025.

[Frá fundinum í janúar]
  • Í janúar tóku fyrrnefnd aðildarfélög RSÍ auk LV, Samiðnar og Félag starfsfólks í fjármálafyritækjum höndum saman og fengu UNI til Íslands til tveggja daga vinnustofu.  Vinnustofan snérist um að fræðast um starfsemi UNI og deilda þess og hvernig sú starfsemi getur gagnast íslensku félögunum, en einnig voru námskeið haldin sem nýtast munu í starfi hvers félags fyrir sig í framhaldinu þegar kemur að uppbyggingu tengsla við félagsfólk félaganna. Það var ekki síst sú staðreynd sem blasir við í mörgum greinum atvinnulífs víða um heim; fjölgun sjálfstætt starfandi einstaklinga og aukningu í fjölda verktaka milli geira, sem varð til þess að vinnustofan var haldin. Þetta á sérstaklega við í kvikmynda- og tæknigeiranum þar sem hlutfall félagsaðildar er lægra. Fulltrúar UNI deildu reynslu sinni af því að ná til þessara hópa og hvernig aðlaga megi starfsemi að þörfum þeirra, sérstaklega varðandi launakerfi fyrir fólk án reglulegra tekna. UNI kynnti einnig herferð sína um ábyrg opinber innkaup og fjármögnun til að vernda starfsmenn gagnvart áhrifum gervigreindar – sem einnig á við á Íslandi.Vinnustofan endaði á umræðu um EPOC- Empowering Union Power in Companies og þróun  „heildarstefnu fyrir stéttarfélög“, sem byggir m.a. á því að styrkja nærveru og aðgerðir á hverjum vinnustað með því að byggja upp þétt net trúnaðarmanna. Íslensku félögin sem stóðu að vinnustofunni hófu samtal um frekara samvinnu í framhaldinu um áframhaldandi vöxt og nýsköpun í verkalýðshreyfingunni.

[Belfastfarar á UNI þing 2025]
  • Í mars 2025 var haldin UNI Europa þing í Belfast undir yfirskriftinni Real Say, More Pay og fóru 5 fulltrúar frá RSÍ á þingið, Jakob Tryggvason FTF, Georg Páll Skúlason Grafía, Haraldur Sturluson FÍS, Haraldur Arnarson Grafía og Anna Melsteð FTF. Dagskráin hófst með kvennaráðstefnu og svo tók við þriggja daga dagskrá í kjölfarið. Ráðstefnuhald litaðist nokkuð af mótmælum vegna stríðs í Palestínu bæði fyrir utan þinghúsnæði og innan.Í Uni Europa eru um sjö milljónir félagsfólks í þjónustugreinum en Evrópudeild UNI er 25 ára árið 2025.Á kvennaráðstefnunni var rifjað upp að 15 ár eru síðan 40/40 markmiðið um skiptingu milli kynja var sett fram en það hefur leitt af sér fjölgun kvenna í verkalýðsbaráttunni um allan heim. Áhyggjur af stöðu viðkvæmra hópa í Bandaríkjunum voru ræddar og afleiðingar nýrra laga Trumps sem eru hagnýtt sumsstaðar til að segja upp fólki sem tilheyrir þessum hópum. Regluverk og leiðbeiningar í jafnréttismálum sem og fræðslu um viðbrögð við áreitni- og ofbeldismálum hafa komið út undanfarin ár ekki síst vegna ILO190 samþykktar Alþjóða vinnumálastofnunarinnar, sem enn hefur enn ekki verið fullgild inn í íslenskt lagaumhverfi. Umræður urðu um heimilin sem hina nýju vinnustaði og áhyggjur af þeirri þróun sem leitt gæti af sér einangrun og jafnvel aukið heimilisofbeldi. Ákall um frekari aðgerðir til að ná árangri í jafnréttisbaráttu var sett fram því enn er launamunur út frá kyni við lýði á vinnumarkaði Evrópu. M-in fjögur voru einnig í umræðunni: Menstruation, Maternity, Menopause og Mental health. Þessi hugtök eru víða tabú en þarf að setja á dagskrá í auknum mæli.
  • 6. þing UNI Europe
    Í erindum á þinginu kom fram að þríhliða samningar meðal verkalýðsfélaga, atvinnurekenda og stjórnvalda er hornsteinn samninga í Evrópu, sem hefur sýnt mikla samstöðu. Mikilvægt er að öflug verkalýðshreyfing sé til staðar þegar ný lög eru innleidd, en verkalýðshreyfingin verður að vera rödd skynseminnar í þeim öfga hægri málflutningi sem einkennir stjórnmál víða um heim. Stjórnmál verði að snúast um von en ekki hatur eða stríð. Endurnýjun verkalýðshreyfingarinnar var til umræðu og tengdist beint efni vinnustofa sem haldnar voru á Íslandi í janúar. Skipuleggja þarf starf og uppbyggingu innan verkalýðsfélaga ekki síst þar sem ítök þeirra eru ekki mikil. Fræðsla í skipulagi verkalýðsbaráttu er einnig mikilvæg til árangurs. Fram komu áhyggjur af stöðu samninga og samtöl við aðila vinnumarkaðsins og hins opinbera hjá mörgum fulltrúum. Beinast áhyggjur einkum af því stjórnmálalandslagi sem verður æ útbreiddara í heiminum með öfga hægri stjórnmálaflokkum sem náð hafa völdum víða. Talsverð umræða var einnig um áhrif gervigreindar á störf í samtímanum og niðustaðan sú að þörf fyrir reglugerðir og fræðslu er mikil um þessi málefni. Gervigreindartæknin þarf að vera á forsendum vinnandi fólks en ekki fyrirtækja og því er þörf fyrir mikla fræðslu ekki síst til samninganefnda og stjórnvalda í hverju landi, þar gæti RSÍ látið til sín taka með því að vekja athygli þingmanna á málefninu. Evrópskar reglugerðir í þessum málaflokki gætu verið fyrirmyndir fyrir íslenskt umhverfi.
    Í málflutningi Christy Hoffman forseta Uni Global varð staðan í Bandaríkjunum umræðuefni og gagnrýndi hún Trumpstjórnina harkalega. Áskoranir vestanhafs eru gríðarlega stórar í kjölfar forsetaskipta, sem fyrirtæki og stofnanir eru að horfast í augu við á mörgum sviðum í stöfum sínum.  Í máli hennar kom fram að vinnumarkaðurinn treysti á forystuna í verkalýðsmálum til að verja fólk fyrir t.d. stjórnmálafólki eins og Trump. Nota þurfi allar mögulegar aðferðir til þess að fylkja verkalýðshreyfingunni saman gegn þessum stjórnmálum, verðmæti samvinnu milli heimsálfa hafi aldrei verið mikilvægara en nú, þar sem billjónera áróður sé út um allt og því mikilvægt fyrir verkalýðshreyfinguna að berjast gegn honum.
    Mörg önnur málefni voru rædd eins og t.a.m. skort á vinnuafli í Evrópu, framtíðina og næstu kynslóðir verkalýðsforystu sem tíundað er ítarlegar í sameiginlegu vinnuskjali hópsins. Halla Gunnarsdóttir VR var kosin í framkvæmdastjórn UNI Europa og situr þar í hópi 10 norrænna fulltrúa í framkvæmdastjórn en það er í fyrsta sinn sem íslenskur fulltrúi situr í framkvæmdastjórn.

Nefndir innan RSÍ

Stjórn og nefndir ASÍ

Seta í stjórnum og ráðum

Framkvæmdastjórn RSÍ
Formaður RSÍ: Jakob Tryggvason
Meðstjórnandi: Ragnar G. Gunnarsson
Aðalmenn miðstjórnar RSÍ
Anna Melsteð
Elma Bjarney Guðmundsdóttir
Haraldur Örn Sturluson
Ragnar G. Gunnarsson
Róbert Steingrímsson 

Sigurjón Ólason
Varamenn
Hafþór Ólafsson
Jónína Ragnheiður Kristjánsdóttir
Páll S. Guðmundsson
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Sæunn Hrund Björnsdóttir               Sambandsstjórn
Aðalmenn
Elva Sara Ingvarsdóttir
Gunnar Ásgeirsson
Lydia Grétarsdóttir
Móeiður Helgadóttir
Sigurður Ingi Kjartansson
Sæunn Hrund Björnsdóttir
Sigurður J. Guðmundsson
Varamenn
Björn Helgason
Jónína Ragnh. Kristjánsdóttir
Ólafur Ragnar Halldórsson
Ragnar Páll Bjarnason
Starfsnefndir miðstjórnar
Fjölskylduhátíðarnefnd RSÍ
Sigríður Rósa Bjarnadóttir, formaður
Jafnréttisnefnd RSÍ
Anna Melsteð, Elma Bjarney Guðmundsdóttir.
Launanefnd RSÍ
Elma Bjarney Guðmundsdóttir
Laga- og skipulagsnefnd RSÍ
Jakob Tryggvason
Menntanefnd RSÍ
Ragnar G. Gunnarsson
Orlofsnefnd RSÍ
Anna Melsteð, formaður
Haraldur Örn Sturluson
Golfnefnd RSÍ
Hlín Guðjónsdóttir
Skoðunarmenn RSÍ
Sæunn Hrund Björnsdóttir
Árni H. Jóhannsson, varamaður
Skoðunarmenn reikninga FTF
Trausti Þór Friðriksson
Þröstur Árnason
Til vara: Sigrún Sigurðardóttir
Trúnaðarráð FTF
Anna Melsteð
Siggi Bahamas
Ragnar Pétur Pétursson
Andrea Björk Karelsdóttir
Móeiður Helgadóttir
Kormákur Marðarson
Jóhannes Tryggvason
Sigurður Ingi Kjartansson
Lydia Grétarsdóttir
Ragnar Páll Bjarnason
Inntökunefnd
Sigrún Sigurðardóttir – formaður, skipuð af miðstjórn RSÍ
Ragnar G. Gunnarsson
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Húsnæðisnefnd
Aðalmaður:
Jafnréttisnefnd
Aðalmaður: Anna Sigríður Melsteð
Lífeyris-, heilbrigðis- og trygginganefnd
Aðalmaður:
Menntanefnd
Varamaður:
Fjölmiðla- og kynningarnefnd
Varamaður:
Ótrygg ráðningarsambönd
Fulltrúi miðstjórnar:
Jakob Tryggvason, formaður nefndar
Aðalmaður:
Varamaður:


Fulltrúar á þingi ASÍ – aðalmenn 

(Fulltrúafjöldi getur tekið breytingum)

Anna Melsteð
Haraldur Örn Sturluson
Ragnar G. Gunnarsson
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Sæunn Hrund Björnsdóttir

Fulltrúar á þingi ASÍ – varamenn

(Fulltrúafjöldi getur tekið breytingum)
Elva Sara Ingvarsdóttir
Elma Bjarney Guðmundsdóttir
Hafþór Ólafsson
Páll S. Guðmundsson
Sigrún Sigurðardóttir
Sigurjón Ólason

Stjórn FTF
Ragnar G. Gunnarsson, formaður
Elma Bjarney Guðmundsdóttir
Elva Sara Ingvarsdóttir
Hafþór Ólafsson
Haraldur Örn Sturluson

Páll S. Guðmundsson
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Sigurjón Ólason
Varamenn:
Gunnar Ásgeirsson
Jónína Ragnh. Kristjánsdóttir
Róbert Steingrímsson
Sæunn Hrund Björnsdóttir
Menntasjóður rafiðnaðarins
Starfsgreinaráð rafiðnaðarins
Ragnar G. Gunnarsson
Stjórn Birtu
Jakob Tryggvason
Fulltrúar í fulltrúaráði Birtu – aðalmenn 2023-2026(Fulltrúafjöldi getur tekið breytingum)
Elma Bjarney Guðmundsdóttir
Hafþór Ólafsson
Jóhannes Tryggvason
Páll S. Guðmundsson
Ragnar G. Gunnarsson
Sigurjón Ólason
Fulltrúar í fulltrúaráði Birtu – varamenn 2023-2026(Fulltrúafjöldi getur tekið breytingum)Álfhildur Guðmundsdóttir
Elva Sara Ingvarsdóttir
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Fulltrúar RSÍ ung
Kormákur Marðarson
Kjörstjórn
Adam Kári Helgason – formaður, skipaður af miðstjórn RSÍ
Hafþór Ólafsson
Ragnar G. Gunnarsson
0
Fjöldi einstaklinga
0
Fjöldi vinnustaða