Lög Félags tæknifólks
1. KAFLI : NAFN, FÉLAGSSVÆÐI, HLUTVERK OG FÉLAGSAÐILD
1. Grein
Félagið heitir Félag tæknifólks skammstafað FTF. Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík. Félagið er
landsfélag.
2. Grein
Félagið er aðili að Rafiðnaðarsambandi Íslands (RSÍ), sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands (ASÍ).
3. Grein
Hlutverk félagsins er :
a. Að sameina í stéttarfélagi alla sem starfa skv. kjarasamningum félagsins.
b. Að gera samninga um kaup og kjör fyrir hönd félagsmanna.
c. Að hafa í heiðri jafnréttissjónarmið og stuðla að jafnri meðferð allra félagsmanna.
d. Að efla samhug og samheldni félagsmanna.
e. Að bæta og vernda réttindi og hagsmuni félagsmanna í atvinnu-, réttinda- og aðbúnaðarmálum.
f. Að veita félagsmönnum aðstoð í veikindum og atvinnuleysi.
g. Að vinna að fræðslu og menningarmálum í þágu félagsmanna.
h. Að hafa samstarf við önnur stéttarfélög um sameiginleg hagsmunamál.
i. Að efla og varðveita sögu faggreina og fagþekkingu félagsmanna.
j. Að efla samstarf innan skapandi greina, miðlunar, nýsköpunar, upplýsingatækni, raf- og tækniiðnaði,
með það að markmiði að verja hagsmuni félagsmanna, tryggja öryggi þeirra réttindi og hugverk.
4. Grein
Fullgildir félagsmenn geta þeir einir orðið sem :
a. Sem starfa við tæknitengd störf í fjölmiðlun og annarri miðlun, upplýsingatækni, hugverka-, fjarskipta-
og leikjaiðnaði, sviðslistum, kvikmyndum, viðburðaþjónustu og öðrum skapandi greinum.
b. Starfa fyrir RSÍ, FTF eða hjá stofnunum þeim tengdum.
c. Standa ekki í óbættum sökum við félagið eða önnur stéttarfélög innan ASÍ.
Heimilt er að veita inngöngu í félagið þeim sem eru í námi í þeim greinum sem taldar eru upp í a) og b) liðum
þessarar greinar, hvort sem þeir eru í námi á vinnumarkaði eða í skólum og eru á aldrinum 18 til 35 ára. Eru
þeir gjaldgengir í starfi ungliða á vettvangi félagsins. Hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins en ekki
atkvæðisrétt.
Þeir félagsmenn sem að staðaldri hafa aðra félaga innan vébanda RSÍ í þjónustu sinni geta ekki gegnt
trúnaðarhlutverki fyrir hönd félagsins.
5. Grein
Umsókn um inntöku í félagið skal vera rafræn. Í umsókn um inngöngu felst að umsækjandi skuldbindur sig til
að hlýða lögum félagsins og samþykktum í öllum greinum.
Enginn telst fullgildur félagsmaður ef inntökuumsókn hans hefur verið hafnað af meirihluta stjórnar félagsins
að fengnu áliti inntökunefndar.
Hafni stjórn félagsins umsókn um inntöku, hefur umsækjandi rétt til að vísa umsókn sinni til félagsfundar. Synji
félagsfundur umsókn um inngöngu í félagið á umsækjandi rétt á að skjóta málinu til Rafiðnaðarsambands
Íslands. Umsækjandi á rétt á að vísa úrskurði RSÍ til Alþýðusambands Íslands.
Hafi einstaklingur, sem uppfyllir ákvæði 4. gr., greitt til sjóða félagsins í 6 mánuði eða lengur og hefur ekki sótt
um aðild samkvæmt 1 mgr., telst hann fullgildur félagi nema ósk komi fram frá honum um annað.
6. Grein
Úrsögn úr félaginu skal vera undirrituð og skal komið til skrifstofu félagsins. Enginn getur sagt sig úr félaginu
eftir að ákveðið hefur verið að efna til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun. Einnig er óheimilt að segja sig úr
félaginu til þess að taka upp störf félagsmanna í öðru stéttarfélagi sem lagt hefur niður störf vegna löglegrar
deilu um kaup og kjör.
2. KAFLI : RÉTTINDI OG SKYLDUR FÉLAGSMANNA, RÉTTINDAMISSIR OG BROTTREKSTUR
7. Grein
Réttindi félagsmanna eru:
a. Allir félagsmenn njóta málfrelsis og tillöguréttar en fullgildir félagsmenn einir njóta atkvæðisréttar.
Samninganefnd félagsins er þó heimilt að veita öllum félagsmönnum atkvæðisrétt um kjarasamninga
félagsins og ákvarðanatökur um vinnustöðvanir.
b. Fullgildir félagsmenn einir njóta kjörgengis í trúnaðarstöður félagsins og á vegum þess í þeim
samtökum, sem félagið á aðild að.
c. Réttur til vinnu á þeim kjörum, sem samningar félagsins kveða á um.
d. Réttur til styrkveitinga úr sjóðum félagsins, svo sem nánar er kveðið á um í reglugerðum sjóðanna.
e. Réttur til aðstoðar félagsins vegna vanefnda á samningum sem félagið hefur gert við atvinnurekendur.
f. Réttur til aðstoðar félagsins í atvinnuleit sé félagsmaður atvinnulaus
8. Grein
Skyldur félagsmanna eru:
a. Að hlýða lögum félagsins, fundarsköpum, félagssamþykktum og samningum í öllum greinum.
b. Að greiða gjöld sín til félagsins á réttum gjalddaga.
c. Að gegna trúnaðarstöðum fyrir félagið sbr. þó 39. gr. og 50. gr.
9. Grein
Fullgildur félagsmaður hefur fyrirgert rétti sínum í félaginu, ef hann:
a. Brýtur lög félagsins, samþykktir eða samninga.
b. Skuldar meira en tólf vikna gjöld til sjóða félagsins vegna eigin vanrækslu.
c. Veldur félaginu tjóni eða álitshnekki að mati stjórnar.
d. Skuldar tveggja ára félagsgjöld og verður hann þá tekinn af félagsskrá.
10. Grein
Ef sannað er að fullgildur félagsmaður hefur brotið gegn ákvæðum 9. gr. a og c -liða laga þessara, skal stjórn
félagsins veita honum áminningu. Sé brotið ítrekað skal stjórnin leggja rökstudda tillögu um að viðkomandi
félagsmaður verði sviptur réttindum fullgilds félagsmanns fyrir félagsfund.
11. Grein
Vanræki fullgildur félagsmaður greiðslu tilskilinna gjalda til sjóða félagsins sbr. ákvæði 9. gr. b-liðar, er stjórn
félagsins heimilt að svipta hann fullgildum félagsréttindum með viku fyrirvara þar til skuldin er að fullu greidd.
Félagsmaður á rétt til að skjóta úrskurði stjórnar til félagsfundar, en skilt að hlýta úrskurðinum þar til honum er
hrundið af félagsfundi.
12. Grein
Úrskurðum um áminningu og sviptingu réttinda má vísa til Rafiðnaðarsambands Íslands samkvæmt ákvæðum
laga þess.
Félagsmaður á rétt á að vísa úrskurði RSÍ til Alþýðusambands Íslands. Hafi félagsmaður verið sviptur fullgildum
félagsréttindum fær hann þau ekki að nýju nema félagsfundur samþykki.
3. KAFLI : AÐAL- OG FÉLAGSFUNDIR
13. Grein
Aðalfund félagsins skal halda fyrir apríllok árlega. Stjórn félagsins leggur fram á aðalfundi skýrslu um störf sín,
endurskoðaða reikninga sjóða félagsins og önnur mál eftir því sem þurfa þykir. Á aðalfundi skal kjósa í
trúnaðarstöður sbr. 33. gr. og 34. gr.
14. Grein
Aðalfund skal boða skriflega eða með rafpósti með sjö sólarhringa fyrirvara. Í fundarboði skal getið dagskrár
fundarins. Ef tillögur um breytingar á lögum félagsins liggja fyrir skal geta þeirra í fundarboði. Enn fremur skal
birta fundarboð með auglýsingum á heimasíðu félagsins og miðlum félaginu tengdu.
15. Grein
Félagsfundir skulu haldnir þegar stjórn félagsins þykir þurfa, eða ef 15 félagsmenn krefjast þess skriflega, enda
tilgreini þeir fundarefni.
Á aðalfundi skulu eftirfarandi mál tekin til umræðu og atkvæðagreiðslu:
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir reikningar félagsins
- Lagabreytingar ef einhverjar eru.
- Kosning í trúnaðarstöður
- Önnur mál
16. Grein
Til félagsfunda skal boða með auglýsingum á heimasíðu félagsins og miðlum félaginu tengdu eða með rafpósti
með tveggja sólarhringa fyrirvara. Ef vinnustöðvun eða aðrar gildar ástæður gera ókleift að boða félagsfund á
framangreindan hátt, skal heimilt að boða fund með skemmri fyrirvara með tilkynningu á heimasíðu félagsins,
miðlum félaginu tengdu eða rafpósti.
17. Grein
Öllum fundum skal stjórnað samkvæmt fundarsköpum félagsins. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum allra mála,
nema lög þessi kveði á um annað. Allir fundir eru lögmætir sé löglega til þeirra boðað og mættur er meirihluti
stjórnar.
18. Grein
Heimilt er að halda aðal- og félagsfundi með rafrænum hætti enda hafi það verið tryggt eins og frekast er unnt
að atkvæði greidd í rafrænni atkvæðagreiðsla séu einkvæm. Sé félagsmaður þátttakandi á fundi á þann hátt að
ekki sé hægt að tryggja einkvæma atkvæðagreiðslu hans telst sá félagsmaður hafa tillögu og málfrelsisrétt en
ekki atkvæðarétt.
4. KAFLI : DEILDARSKIPTING FÉLAGSINS, MEÐFERÐ SAMNINGA OG VINNURÉTTUR
19. Grein
Aðalfundur getur ákveðið að skipta félaginu í deildir, enda hafi þess verið getið í fundarboði að tillaga um slíkt
lægi fyrir og stjórn félagsins og trúnaðarráð mæli með slíkri deildarstofnun.
Verði ákveðin stofnun félagsdeildar, skal aðalfundur setja starfsemi hennar reglur innan þess ramma, sem lög
þessi heimila. Gerð kjarasamninga skal þó stjórn og trúnaðarráð fara með í umboði deildar og í samráði við
hana.
20. Grein
Félagið gerir samninga um kaup og kjör félagsmanna eða einstakra hópa félagsmanna, annaðhvort eitt sér eða
í samráði við önnur stéttarfélög.
Samninga sem innihalda ákvæði, sem varða kjör allra eða meirihluta félagsmanna, eða geta haft
stefnumarkandi áhrif á kjör þeirra að mati stjórnar og trúnaðarráðs, skal leggja fyrir félagsfund eða
allsherjaratkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.
Samningar sem fjalla um kjör einstakra smærri hópa í félaginu skal leggja fyrir viðkomandi hóp til afgreiðslu.
Slíkan samning skal einnig leggja fyrir trúnaðarráð til staðfestingar.
21. Grein
Stjórn og trúnaðarráð skipa fulltrúa til starfa í samninganefndum félagsins og í samninganefndir sem félagið á
aðild að í samvinnu við önnur stéttarfélög eða landssambönd og veitir þeim umboð til starfa. Í
samninganefndum á vegum félagsins skulu að öllu jöfnu eiga sæti trúnaðarmenn starfsmanna sem vinna eftir
viðkomandi samningi.
Trúnaðarráð gerir viðræðuáætlanir fyrir hönd félagsins. Trúnaðarráð getur veitt samninganefnd umboð til að
gera viðræðuáætlun.
Trúnaðarráð ber ábyrgð á að kröfugerðir séu unnar og lagðar fram. Trúnaðarráð getur veitt samninganefnd
umboð til að gera og leggja fram kröfugerð. Kröfugerð skal ávallt gera í samráði við þá félagsmenn, sem vinna
eftir viðkomandi samningi.
22. Grein
Stjórn félagsins getur ákveðið framsal samningsréttar félagsins til Rafiðnaðarsambands Íslands þegar þurfa
þykir. Sé RSÍ afhent samningsumboð félagsins skulu lög og reglur sambandsins segja til um hvernig samningur
er afgreiddur og staðfestur.
Á félagssvæði FTF gildir gagnkvæmur vinnuréttur fyrir félagsmenn í öðrum félögum innan RSÍ, í samræmi við
ákvæði í 5. gr. laga RSÍ.
5. KAFLI : STJÓRN, TRÚNAÐARRÁÐ OG AÐRAR TRÚNAÐARSTÖÐUR
23. Grein
Stjórn félagsins er skipuð átta einstaklingum, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og fjórir
meðstjórnendur, auk fjögurra einstaklinga í varastjórn. Varaformaður gegnir störfum formanns í forföllum hans
en í forföllum annarra úr stjórn taka varastjórnarmenn sæti stjórnarmanna.
24. Grein
Stjórn félagsins og varastjórn ásamt tíu einstaklingum skipa trúnaðarráð félagsins. Formaður félagsins skal vera
formaður trúnaðarráðs og ritari félagsins ritari þess.
25. Grein
Formaður kallar saman stjórnarfundi og trúnaðarráðsfundi með þeim sannanlega hætti sem hann telur
heppilegastan. Stjórnarfundir og trúnaðarráðsfundir eru lögmætir ef meirihluti meðlima er mættur. Skylt er
formanni að boða trúnaðarráðsfund ef þriðjungur trúnaðarráðs óskar þess og tilgreinir fundarefni. Fundir geta
verið haldnir með rafrænum hætti.
26. Grein
Formaður stjórnar fundum stjórnar og trúnaðarráðs og hefur eftirlit með að meðstjórnendur hans,
skoðunarmenn og aðrir trúnaðarmenn félagsins ræki skyldur sínar. Varaformaður gegnir öllum störfum
formanns í forföllum hans.
27. Grein
Ritari skráir greinilega frásögn um það sem gerist á stjórnar-, trúnaðarráðs- og félagsfundum. Fundagerðir
skulu geymdar með rafrænum hætti. Ritari undirritar fundargerðir funda ásamt formanni.
28. Grein
Gjaldkeri hefur á hendi eftirlit með sjóðum og fjárreiðum félagsins, innheimtu gjalda og færslu bókhalds eftir
nánari fyrirmælum stjórnar.
29. Grein
Stjórn félagsins skal skipa trúnaðarmenn og öryggistrúnaðarmenn á vinnustöðum samkvæmt ákvæðum í
landslögum og/eða samningum félagsins að höfðu samráði við viðkomandi félagsmenn. Félagsfundur setur
reglur um skipan og störf trúnaðarmanna.
Í þeim tilfellum þar sem ekki er trúnaðarmaður á vinnustað til dæmis í tímabundnum verkefnum eða þar sem
margir vinnuveitendur eiga aðkomu að, getur stjórn skipað svæðistrúnaðarmann fyrir verkefnið eða svæðið
eftir þörfum. Skulu þessir svæðistrúnaðarmenn teljast ígildi trúnaðarmanns og gegna sama hlutverki.
30. Grein
Trúnaðarráð gerir tillögu um vinnustöðvun, hvenær hún skuli taka gildi, til hverra hún skuli taka og með hvaða
hætti tillaga um vinnustöðvun skuli afgreidd.
Trúnaðarráð ákveður hvenær samningar félagsins hafa stefnumarkandi gildi fyrir hag og afkomu félagsmanna
og tekur ákvörðun um með hvaða hætti samningar skuli afgreiddir á vettvangi félagsins.
Þegar brýn mál ber að höndum og ekki eru tök á að ná saman félagsfundi, getur formaður kallað saman
trúnaðarráð í nafni stjórnarinnar og henni til aðstoðar. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum í slíkum málum.
31. Grein
Stjórn félagsins tilnefnir í samstarfi við önnur félög innan RSÍ, fulltrúa í framkvæmdastjórn ungliða og
trúnaðarráð ungliða innan RSÍ.
Stjórn félagsins tilnefnir fulltrúa félagsins í fulltrúaráð Birtu lífeyrissjóðs, þing ASÍ og í aðrar trúnaðarstöður fyrir
félagið svo sem ýmis nefndarstörf.
32. Grein
Segi félagsmaður, sem trúnaðarstarfi gegnir fyrir félagið, sig úr því er honum skylt að skila af sér öllu er varðar
trúnaðarstörf hans um leið og úrsögn er send.
6. KAFLI : ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA, KJÖR Í STJÓRN, TRÚNAÐARRÁÐ OG ARÐAR TRÚNAÐARSTÖÐUR
33. Grein
Kjósa skal stjórn og trúnaðarráð á aðalfundi.
Formaður, þrír úr stjórn, tveir úr varastjórn og fimm úr trúnaðarráði skulu kosnir til tveggja ára annað árið og
varaformaður, þrír úr stjórn, tveir úr varastjórn og fimm úr trúnaðarráði til tveggja ára hitt árið.
Kjósa skal formann eða varaformann fyrst , síðan til stjórnar, þá til varastjórnar og svo til trúnaðarráðs eftir því
hvaða embætti er í kjöri það árið. Að því loknu eru kosnir tveir í inntökunefnd, tveir í kjörstjórn og tveir
skoðunarmenn reikninga auk eins varaskoðunarmanns.
Heimilt er að vísa kjöri í trúnaðarstöður til allsherjaratkvæðagreiðslu, telji trúnaðarráð það nauðsynlegt eða
æskilegt. Í þeim tilvikum á niðurstaða kjörs liggja fyrir 7 dögum fyrir aðalfund til kynningar og staðfestingar á
aðalfundi.
34. Grein
Trúnaðarráði er skylt að skila til kjörstjórnar tillögum um kjör í trúnaðarstöður samkvæmt 23. gr. og 24. gr. og
skal tillaga trúnaðarráðs leitast við að endurspegla fjölbreytta samsetningu félagsins og jafnréttissjónarmið
eins og frekast er kostur.
Á tillögu trúnaðarráðs skulu vera nöfn jafnmargra félagsmanna og kjósa skal. Tillaga skal vera um formann og
varaformann sér og síðan aðrar trúnaðarstöður.
Framboð sem standa utan tillögu trúnaðarráðs ber að skila til kjörstjórnar FTF. Fullgildir félagsmenn geta boðið
sig fram áður en framboðsfrestur rennur út, með undirritaðri yfirlýsingu.
Atkvæðagreiðslan er bundin við þær tillögur sem koma fram samkvæmt 23. gr. og 24. gr. eða tillögur, sem
lagðar eru fyrir samkvæmt heimild í 33. gr.
Komi aðeins fram ein tillaga eða framboð í trúnaðarstöður, þarf kosning ekki að fara fram.
Auk tveggja kjörstjórnarfulltrúa sem kjörnir eru á aðalfundi er þriðji fulltrúinn skipaður af miðstjórn RSÍ og er
hann jafnframt formaður kjörstjórnar.
Auk tveggja inntökunefndarfulltrúa sem kjörnir eru á aðalfundi er þriðji fulltrúinn skipaður af miðstjórn RSÍ og
er hann jafnframt formaður inntökunefndar.
Aðalstjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir að kjöri hefur verið lýst.
35. Grein
Trúnaðarráði er heimilt að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu um afgreiðslu kjarasamninga eða önnur málefni,
eftir því sem þurfa þykir.
Á sama hátt skal efna til allsherjaratkvæðagreiðslu ef:
- Félagsfundur samþykkir ályktun þar um.
- Minnst 1/10 hluti fullgildra félagsmanna krefst þess.
- Miðstjórn RSÍ eða miðstjórn ASÍ gefur um það fyrirmæli.
36. Grein
Félagsstjórn er heimilt að fela kjörstjórn, sem skipuð er af miðstjórn RSÍ, umsjón með kosningum um
kjarasamninga, sem félagið er aðili að með öðrum stéttarfélögum.
37. Grein
Kjörstjórn hefur umsjón með framkvæmd kosninga á aðalfundi
Kjörstjórn skal sjá um gerð kjörskrár og lista yfir þá félagsmenn, sem ekki eru á kjörskrá vegna skulda.
Kjörstjórn skal hafa kjörskrá og skuldalista í sinni vörslu en veita aðgengi að þeim eftir þörfum. Allar kærur
vegna kjörskrár skal kjörstjórn úrskurða jafnskjótt og þær berast. Kærufrestur er til loka atkvæðagreiðslunnar.
Umboðsmenn framboða eða tillögu skulu hafa rétt á að yfirfara kjörskrá ásamt skuldalista um leið og
atkvæðagreiðsla er auglýst.
Kjörstjórn sér um talningu atkvæða að kjörfundi loknum. Umboðsmenn framboða eða tillögu er heimilt að hafa
einn fulltrúa við talningu atkvæða
38. Grein
Kosningu með allsherjaratkvæðagreiðslu er stýrt af kjörstjórn.
Allsherjaratkvæðagreiðsla skal vera rafræn og standa yfir í a.m.k. fimm daga og allt að fjórtán daga, samkvæmt
nánari ákvörðun stjórnar og trúnaðarráðs.
Allsherjaratkvæðagreiðsla skal vera leynileg. Kjörstjórn skal sjá um að félagsmenn fái nægjanlega snemma
vitneskju um atkvæðagreiðsluna, hve lengi hún stendur yfir og á hvern hátt hún fer fram.
Kjörstjórn auglýsir atkvæðagreiðslu og kynnir efni kosninga. Í auglýsingu skal koma fram á hvern hátt kosning
fer fram, hvenær hún hefst og hvenær henni lýkur. Auglýsingu skal birta í dagblöðum, á heimasíðu félagsins og
í miðlum félaginu tengdu, eða á annan hátt svo tryggt sé að félagsmenn fái nægjanlega snemma vitneskju um
atkvæðagreiðsluna.
39. Grein
Þeir félagsmenn einir hafa framboðs og atkvæðisrétt, sem greitt hafa að fullu gjöld til félagsins á næstliðnu ári.
Eftir að atkvæðagreiðsla hefur verið auglýst og kjörskrá lögð fram má ekki bæta nýjum félagsmönnum á
skrána, en þeir sem skulda gjöld til félagsins geta öðlast atkvæðisrétt ef þeir greiða skuld sína að fullu áður en
atkvæðagreiðslu lýkur.
40. Grein
Stjórn félagsins skal fyrir febrúarlok ár hvert auglýsa frest til framboðs í trúnaðarstöður samkvæmt 23. gr. og
24. gr.
Framboðsfrestur rennur út á hádegi 15. mars ár hvert. Framboðum skal skilað til kjörstjórnar FTF innan þess
tíma. Framboð skulu kynnt með fundarboði aðalfundar, eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
40.1 Grein – Tímabundin grein sem fellur út 2025 að undangenginni staðfestingu aðalfundar.
Vegna sameiningar Félag tæknifólks og Félags íslenskra símamanna og til að tryggja sem best yfirfærslu
þekkingar og verkefna frá félögunum til nýrrar stjórnar í sameinuðu félagi er fráfarandi stjórnum félaganna
sem sameinast, falið að stilla upp fyrstu stjórn og trúnaðarráði í sameinuðu félagi.
Uppstilling í stjórn og trúnaðarráð skal lögð fram til staðfestingar á stofnfundi sameinaðs félags.
Ný stjórn og trúnaðarráð sameinaðs félags sem tekur við stjórn félagsins á stofnfundi 2024 situr til aðalfundar í
apríl 2025. Á aðalfundi 2025 fellur grein þessi númer 40.1 á brott og kjör fer fram samkvæmt lögum félagins
utan þess að uppstilling trúnaðarráðs skal þá taka fram hver sé í kjöri til eins árs og hver til tveggja ári svo
réttum takti sé komið á við kjör í trúnaðarstöður.
7. KAFLI : FJÁRMÁL
41. Grein
Sjóðir félagsins eru eftirtaldir
- Félagssjóður
- Menningarsjóður
Félagið á aðild að eftirtöldum sameiginlegum sjóðum Rafiðnaðarsambands Íslands
- Sjúkrasjóður
- Orlofssjóður
- Vinnudeilusjóður
Félagið er aðili að Menntasjóði rafiðnaðarins, sem er sjálfstæður fjárhagsaðili.
42. Grein
Gjöld til félagssjóðs eru ákveðin á aðalfundi. Ákveða má gjöld til félagssjóðs á félagsfundi, enda hafi þess verið
getið í fundarboði að ákvörðun þar um sé á dagskrá fundarins.
43. Grein
Gjalddagi gjalda til sjóða félagsins er hvern kaupgreiðsludag. Þó er heimilt að greiða gjöldin mánaðarlega, sé
þess óskað, enda komi samþykki gjaldkera til. Gjöldum skal halda eftir af vinnulaunum félagsmanna hjá
atvinnurekanda, enda sé kveðið á um það í kjarasamningum.
44. Grein
Hafi félagsmaður verið atvinnulaus eða veikur í einn mánuð eða lengur samfleytt, er stjórn félagsins heimilt að
fella niður gjaldskyldu hans til sjóða félagsins tímabundið, enda sé atvinnuleitandi skráður hjá
Vinnumálastofnun og greiði félagsgjald af bótum og sá félagsmaður sem veikur er þiggi þjónustu frá
sjúkrasjóði.
45. Grein
Gjaldfrjálsir til sjóða félagsins skulu þeir félagsmenn vera, sem stunda nám hér á landi eða erlendis og eru
launalausir þess vegna þann tíma sem á námi stendur. Einnig þeir félagsmenn sem lokið hafa störfum vegna
aldurs eða varanlegrar örorku og greiddu til félagsins í a.m.k. fimm ár fyrir starfslok. Þeir sem gjaldfrjálsir eru
samkvæmt ákvæðum þessarar greinar skulu þó njóta fullra félagsréttinda.
46. Grein
Félagsmaður sem stundað hefur vinnu erlendis og ekki greitt gjöld til sjóða félagsins þann tíma, skal því aðeins
fá full félagsréttindi á ný, að hann sýni vottorð um að hann hafi greitt stéttarfélagsgjöld í dvalarlöndum
erlendis. Að öðrum kosti þarf hann að ávinna sér full félagsréttindi á ný á sama hátt og nýjir félagmenn.
47. Grein
Kostnaður við rekstur félagsins skal greiðast úr félagssjóði. Stjórn félagsins er heimilt að greiða þeim
félagsmönnum, sem stjórnin eða félagsfundur kveður til starfa fyrir félagið, kaup fyrir þann tíma, sem þeir fella
niður fasta vinnu fyrir félagið.
Stjórn félagsins er heimilt að gera samninga sem tryggja þeim félagsmönnum sem það velja aðild að
fagfélögum eða réttindum sem stjórnin telur mikilvæg til að tryggja sem best hag og öryggi þessara félaga.
48. Grein
Sjóði félagsins skal ávaxta á ábyrgan hátt, í banka, ríkis- eða fasteignatryggðum skuldabréfum eða hlutaeign í
traustum eignarhaldsfélögum eða sjóðum. Sameiginlega sjóði skal ávaxta eftir stefnu sem aðildarfélögin
viðkomaandi sjóða setja sér.
Gjaldkera er heimilt að taka sjóðina í sína vörslu, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi. Þarf til þess samþykki
félagsstjórnar, enda beri hún sameiginlega ábyrgð á sjóðunum meðan þeir eru í vörslu gjaldkera. Á annan hátt
er óheimilt að ráðstafa sjóðum félagsins, nema með samþykki félagsfundar og þarf til þess 2/3 atkvæða.
Tillagna um slíkt skal getið í fundarboði.
Félagsmenn hafa rétt að sækja um styrki úr sjóðum félagsins skv. reglum hvers sjóðs fyrir sig.
49. Grein
Reikningsár sjóða félagsins skal vera almanaksárið og skulu endurskoðaðir reikningar áritaðir af löggiltum
endurskoðanda liggja fyrir til skoðunar fyrir félagsmenn minnst þrjá daga fyrir aðalfund.
8. KAFLI : HEIÐURSFÉLAGAR
50. Grein
Heiðursfélagar geta þeir félagsmenn orðið, sem unnið hafa lengi fyrir félagið eða gegnt þýðingarmiklum
trúnaðarstörfum fyrir stéttina. Trúnaðarráð útnefnir heiðursfélaga, enda sé það gert með samhljóða
atkvæðum. Einnig geta 15 félagsmenn gert tillögu um heiðursfélaga og skal hún lögð fyrir trúnaðarráð til
afgreiðslu. Heiðursfélagar skulu vera undanþegnir gjaldskyldu til félagssjóðs og kjörskyldu til trúnaðarstarfa, en
eru háðir ákvæðum laga þessara.
9. KAFLI : LAGABREYTINGAR
51. Grein
Lögum þessum má aðeins breyta á lögmætum aðalfundi, hafi þess verið getið í fundarboði og þarf til þess 2/3
atkvæða viðstaddra félagsmanna. Breytingar á lögum þessum koma ekki til framkvæmda fyrr en miðstjórn
Alþýðusambands Íslands og miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands hefur staðfest þær.
52. Grein
Tillögur um lagabreytingar skal afhenda stjórn félagsins eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Skal stjórnin láta
tillögurnar liggja frammi á skrifstofu félagsins, til skoðunar fyrir félagsmenn, 6 daga fyrir aðalfund.
10. KAFLI : FÉLAGSSLIT OG ÚRSÖGN
53. Grein
Félaginu verður því aðeins slitið að tillaga um það hafi verið samþykkt í allsherjaratkvæðagreiðslu með 2/3
atkvæða. Um sameiningu félagsins við annað félag skal fara á sama hátt.
54. Grein
Um úrsögn úr ASÍ eða samtökum sem aðild eiga að ASÍ fer samkvæmt lögum ASÍ.
55. Grein
Verði félaginu slitið skulu allar eignir þess afhentar Rafiðnaðarsambandi Íslands til vörslu, þar til nýtt félag
verður stofnað með sama tilgangi. Nú verður ekki stofnað nýtt félag innan 5 ára frá félagsslitum, skal þá stofna
sjóð sem styrki tæknifólk til framhaldsnáms og skulu allar eigur félagsins renna til sjóðsins. Reglugerð fyrir
sjóðinn skal síðasta stjórn félagsins semja og afhenda RSÍ ásamt eigum félagsins.
Þannig samþykkt á á stofnfundi sameinaðs félags þann 11.11.24 og á aðalfundum Félags tæknifólks og
Félags íslenskra símamanna þann 17.4.24.