Annar aðgerðarpakki ríkisstjórnarinnar var kynntur í gær undir yfirskriftinni: Varnir, vernd og viðspyrna gegn efnahagslegum og félagslegum áföllum.

Helstu áhersluatriði á fundinum í gær voru þessi:

  • Lokunarstyrkir til fyrirtækja sem var gert að hætta starfsemi vegna sóttvarna
  • Stuðningslán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja
  • Fyrirtækjum heimilað að jafna tekjuskatt 2019 með tapi 2020
  • Virkni á vinnumarkaði – úrræði til að efla fólk í atvinnuleit
  • Geðheilbrigði í forgangi, átak gegn ofbeldi og fjarheilbrigðisþjónusta efld
  • Margþættur stuðningur við börn – sérstakur frístundastyrkur til tekjulágra
  • Álagsgreiðslur til heilbrigðisstarfsfólks vegna Covid-19
  • Sumarúrræði fyrir námsmenn – störf, nám og frumkvöðlaverkefni
  • Efling matvælaframleiðslu með nýsköpun og markaðssetningu
  • Frekari sókn til nýsköpunar – fjárfestingar auknar, hærra hlutfall endurgreiðslu og þök hækkuð vegna rannsókna og þróunar

Lítil fyrirtæki í rekstrarörðugleikum fá stuðning, brugðist er við vanda námsmanna, félagsleg úrræði efld og sjónum er beint að nýsköpun til framtíðar. Þetta er hluti af framhaldsaðgerðum stjórnvalda sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hafa kynnt vegna heimsfaraldurs kórónaveiru. Jafnframt greindu þau frá því að framlínufólk í heilbrigðisþjónustu sem búið hefur við aukið álag og mikla smithættu fái álagsgreiðslu.

Hvernig þessi pakki nýtist félögum okkar á eftir að koma í ljós á næstu dögum.

Meira hér