Haustið nálgast og framboð námskeiða eykst með degi hverjum!
Við getum fyllilega mælt með námskeiðinu Símasögur sem Iðan býður upp á í september:
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Glimrandi ehf og fer fram á ensku. Námskeiðið hentar þeim sem vilja læra að nota símann sinn sem tæki til að miðla. IÐAN býður félagsmönnum (þar með talið félögum í Félagi Tæknifólks) þátttöku á námskeiði Glimrandi sem er haldið dagana 1. og 8.september næstkomandi frá 13:30 til 16.30 í gegnum Zoom. Á námskeiðinu læra þátttakendur að nota upptökuforritið Filmicpro á símanum og gæði myndatöku, lýsingar og hljóðupptöku Þá er einnig farið í flokkun efnis og skipulag vinnunnar. Þá er kennt á klippiforritið Kinemaster sem hentar símtækjum vel. Þátttakendur læra að búa til tímalínu og grundvallaratriði í hljóðvinnu, grafík og textun efnis. Jane More, Joshua Kershaw og Connor Whitfeld kenna á námskeiðinu. Jane er þrautreynd í starfi fyrir fjölmiðla og hefur ma unnið fyrir BBC Worldwide og Discovery International, Joshua er eyndur kvikmyndagerðarmaður sem hefur gott auga fyrir skapandi nálgun í tökum og Connor er reynslumikill klippari. Hjónin Gísli Þór Guðmundsson og Anna Hildur Hildibrandsdóttir hjá Glimrandi halda utan um vinnusmiðjurnar eru hafa bæði fjölbreytta reynslu af fjölmiðla- og menningarframleiðslustörfum.
Námskeiðið fer fram á ensku. Verð til félaga: 15.750 kr.-
Þegar skráning fer fram hjá Iðunni þarf að taka fram að reikningur fyrir námskeiðsgjaldi fari til Rafmenntar sem sendir félögum reikning fyrir þeirra hluta námskeiðsins í heimabanka (65% afsláttur gildir fyrir félaga í FTF af fullu námskeiðsgjaldi Iðunnar).