Félag tæknifólks í rafiðnaði er félag sem stofnað var 6. apríl 1993 þegar þekking, reynsla og ekki síst sérnám erlendis fór að verða meira áberandi í starfsumsóknum um hin ýmsu störf t.d. í fjölmiðlaheiminum, leikhúsunum og víðar. Í réttindabaráttu jafnt og á faglega sviðinu hefur félagið haft sitthvað til málanna að leggja, en það var ekki fyrr en 1995 að það varð fullgilt stéttarfélag innan Rafiðnaðarsambands Íslands.
Stofnfélagar voru þeir starfsmenn Ríkisútvarpsins, Þjóðleikhússins og Íslenska útvarpsfélagsins sem ekki voru Iðnskólagengnir en störfuðu eins og Iðnskólagengnir starfsmenn þessara fyrirtækja. Stofnfélagar höfðu margir hverjir aflað sér sérfræðiþekkingar í faginu með ólíkum hætti og fannst réttilega, þeir ekki metnir inn til launa samkvæmt því.
Árið 1997 átti félagið fyrst fulltrúa í samninganefndum Rafiðnaðarsambandsins og hefur félagið síðan unnið jafnt og þétt að því að öll tæknistörf sem undir félagið heyra séu varin að kjarasamningi, uppbyggingu endurmenntunar fyrir félagsmenn og almennt beitt sér fyrir viðurkenningu á þeirri hæfni og þekkingu sem félagsmenn hafa aflað sér.
Félagið er aðila að almennum kjarasamningi Rafiðnaðarsambands Íslands við Samtök atvinnulífsins, auk fjölda sérkjarasamninga, vinnustaðasamninga og samninga við ríki og sveitarfélög.
STJÓRN
Jakob Tryggvason, jakob@taeknifolk.is – Formaður
Ragnar G Gunnarsson, ragnargg@taeknifolk.is – Varaformaður
Páll S. Guðmundsson, hljodstafir@gmail.com – Gjaldkeri
Sigríður Rósa Bjarnadóttir – Ritari
Hafþór Ólafsson, haffi@exton.is – Meðstjórnandi
Elma Bjarney Guðmundsdóttir, elmagudm@gmail.com – Meðstjórnadi
Róbert Steingrímsson, robert@harpa.is – Meðstjórnandi
Varamenn
Elva Sara Ingvarsdóttir, elvasara@gmail.com
Gunnar Ásgeirsson, gunnarasg@gmail.com
Sigurjón Guðni Ólason, sigurjon.olason@stod2.is
TRÚNAÐARRÁÐ
Anna Melsteð
Andrea Björk Karelsdóttir
Jóhannes Tryggvason
Lydía Grétarsdóttir
Máni Huginsson
Móeiður Helgadóttir
Sigrún Sigurðardóttir
Sigurður Ingi Kjartansson
SKOÐUNARMENN
Sigrún Sigurðardóttir
Þröstur Árnason
Til vara er
Anna Melsteð
INNTÖKUNEFND
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Elma Bjarney Guðmundsdóttir
auk þriggja stjórnarmanna
ENDURSKOÐANDI
Theodór S. Sigurbergsson – Grant Thornton